Hólarannsóknin 2003

6
Ragnheiður Traustadóttir [email protected] Hólaskóli Hólum í Hjaltadal WWW.HOLAR.IS/~FORNLEIFAR WWW.HOLAR.IS/~FORNLEIFAR Árbæjarsafn - Minjasafn Reykjavíkur Byggðasafn Húnvetninga og strandamanna á Reykjum Byggðasafn Skagfirðinga Fornleifa- og mannfræðideild UCLA Fornleifastofnun Íslands Háskóli Íslands Háskólinn á Hólum Héraðsskjalasafn Skagfirðinga Högskolan i Dalarna Institutet for Marinarkeologi - Nationalmuseet i Danmark Landgræðsla ríkisins Minjasafn Akureyrar Riksantikvarieämbetet SAU (Societas Archaeologica Upsaliensis) Stockholms Stadsmuseiförvaltning Vígslubiskupinn á Hólum í Hjaltadal Þjóðminjasafn Íslands Þjóðskjalasafn Íslands Örnefnastofnun Íslands Fornleifafræðingar hafa enn eitt árið hafist handa við að svipta hulunni af leyndardómum Hólastaðar. Hólarannsóknin, einhver umfangsmesta fornleifarannsókn sem ráðist hefur verið í á Íslandi, er á öðru ári og því ekki úr vegi að greina í stuttu máli frá því sem telja má markverðast eftir uppgröftinn í fyrrasumar. WWW.HOLAR.IS/~FORNLEIFAR Hólarannsóknin 2003

Transcript of Hólarannsóknin 2003

Ragnheiður Traustadóttir [email protected]

Hólaskóli Hólum í Hjaltadal

W W W . H O L A R . I S / ~ F O R N L E I F A R

W W W . H O L A R . I S / ~ F O R N L E I F A R

Árbæjarsafn - Minjasafn Reykjavíkur Byggðasafn Húnvetninga og strandamanna á Reykjum Byggðasafn Skagfirðinga Fornleifa- og mannfræðideild UCLA Fornleifastofnun Íslands Háskóli Íslands Háskólinn á Hólum Héraðsskjalasafn Skagfirðinga Högskolan i Dalarna Institutet for Marinarkeologi - Nationalmuseet i Danmark Landgræðsla ríkisins Minjasafn Akureyrar Riksantikvarieämbetet SAU (Societas Archaeologica Upsaliensis) Stockholms Stadsmuseiförvaltning Vígslubiskupinn á Hólum í Hjaltadal Þjóðminjasafn Íslands Þjóðskjalasafn Íslands Örnefnastofnun Íslands

Fornleifafræðingar hafa enn eitt árið hafist handa við að svipta hulunni af leyndardómum Hólastaðar. Hólarannsóknin, einhver umfangsmesta fornleifarannsókn sem ráðist hefur verið í á Íslandi, er á öðru ári og því ekki úr vegi að greina í stuttu máli frá því sem telja má markverðast eftir uppgröftinn í fyrrasumar.

WWW.HOLAR.IS/~FORNLEIFAR

Hólarannsóknin 2003

WWW.HOLAR.IS/FORNLEIFAR

HÓLARANNSÓKNIN 2002 Mikilvægustu niðurstöður sumarsins 2002, eru vafalaust staðfestingin á því að Hólar í Hjaltadal varðveita fornleifar óvenjulega vel, þeim hefur ekki verið spillt með seinni tíma framkvæmdum að því marki sem óttast var og þegar á fyrsta ári rannsóknarinnar komu í ljós leifar mannvirkja frá miðöldum, frá fyrstu tíð biskupsstólsins á Hólum en hann var settur á fót árið 1106. Engum kemur á óvart að þessi forni höfuðstaður Norðurlands sé ríkur að minjum því að hér hafa stórhuga menn og framtakssamir búið frá því að sögur hófust. Hver kynslóðin af annarri hefur reynt að laga umhverfið að þörfum sínum, byggt hús, grafið skurði, lagt vegi og sléttað gömul bæjarstæði, jafnvel svo seint sem um miðja 20. öld. Nemendur bændaskólans hafa þar að auki lært að stjórna stórvirkum vinnuvélum með því að róta um gömlum öskuhaug, en slíkir haugar eru alla jafna gullnáma fornleifafræðinga. Þrátt fyrir þetta eru 18. aldar minjar og þaðan af eldri óspilltar, m.a.s. er stór hluti ösku-haugsins óraskaður.

Túnakort 1887

Rannsóknin hefur mikla þýðingu fyrir túlkun á samfélagi byggðalagsins á miðöldum, en þess ber að geta að verslunarstaðir hafa lítið verið rannsakaðir áður. Hér gefst tækifæri til að rannsaka jarðfastar fornleifar við meiriháttar höfn og bjarga hugsanlegum fornleifum áður en þeim skolar á haf út. Hof er landnámsjörð suðaustur af Hólum, þar nam Hjalti Þórðarson land samk-væmt Landnámu. Á Hofi má greina einstakar minjar frá fyrstu tíð Íslandsbyggðar. Ef til vill er þar fundin kirkja úr frumkristni, en nánari rannsókna er þörf. – Sama á við um kirkjugarðinn í Keldudal. Mikið fræða- og kennslustarf fer fram á Hólum og er stefnt að því í sambandi við Hólarannsóknina að efla starf ferðamálabrautar við Hólaskóla og menningartengda ferðaþjónustu á staðnum. Eins er meðal markmiða að efla starfsgrundvöll íslenskrar fornleifafræði til frambúðar með þjálfun stúdenta og fræðimanna, samvinnu innlendra og erlend-ra vísindamanna og með útgáfu og kynningu til þess að vekja almenning frekar til vitundar um íslenska menningarsögu (sjá t.d. www.holar.is/fornleifar). Gerður hefur verið samningur um samstarf við Háskóla Íslands í tengslum við að þar er hafin kennsla í fornleifafræði við sagnfræðiskor. Fornleifarannsóknin á Hólum í Hjaltadal er stórt viðfangsefni, þarft og ögrandi. Fyrsta uppgraftarsumarið gefur fyrirheit um að heildarmarkmið verkefnisins náist með tímanum. Allir þeir innlendu og erlendu starfsmenn, sem hafa ljáð því krafta sína, telja það forréttindi að hafa mátt eiga hlut að máli.

W W W . H O L A R . I S / ~ F O R N L E I F A R

NÆSTU SKREF

NÆSTU SKREF

Hólarannsóknin 2003 verður að mestu leyti framhald á þeim uppgreftri sem hófst í fyrrasumar en það var gleðilegt að hljóta aftur annað árið í röð hæsta styrkinn úr Kristnihátíðarsjóði. Ekki er áformað að opna fleiri svæði á Hólum að svo stöddu. Hins vegar er ráðgert að hefja uppgröft og neðansjávarrannsóknir við Kolkuós (Kolbeinsárós) samhliða Hólarannsókninni með því að þar eru fornar mannvistarleifar að hverfa í sjó. Kolkuós var á miðöldum í hópi helstu hafna landsins og þjónaði m.a. sem höfn Hólastóls. Minjar við ósinn vitna um forna frægð staðarins og eru verðugt rannsóknarefni. Skipulag og húsakostur verður rannsakaður og mat lagt á hlutverk staðarins og mikilvægi hans fyrir héraðið. .

W W W . H O L A R . I S / ~ F O R N L E I F A R WWW.HOLAR.IS/FORNLEIFAR

Múrskeiðarstunga Neðst í haugnum, sem er sunnan við dómkirkjuna og neðan við veginn heim að Hólum, komu í ljós eldstæði og aðrar leifar af fornu mannvirki þar sem þeirra var ekki að vænta fyrirfram. Form þessa mannvirkis, afstaða jarðlaga og ekki síst gjóskugreining bendir til að leifarnar séu frá 11. eða 12. öld. Á þessu stigi er óvarlegt að segja nokkuð um hlutverk þessa húss, en búast má við mjög gagnlegum rannsóknarniðurstöðum, þegar uppgreftri og úrvinnslu lýkur. Hólarannsóknin hófst formlega með "múrskeiðarstungu" Tómasar Inga Olrichs,menntamálaráðherra, 1. júlí 2002 skammt vestan við dómkirkjuna. Áður hafði farið fram umfangsmikil forkönnun á vettvangi og heimildarvinna sem gaf til kynna að einhvers staðar þar í grenndinni hefðu staðið skólahús Jóns Ögmundarsonar, fyrsta biskupsins á Hólum. Kristnihátíðarsjóði, sem var stofnaður í tilefni af 1000 ára afmæli kristni í landinu, má þakka gróskuna sem verið hefur í fornleifarannsóknum um land allt á liðnu sumri. Sjóðurinn styrkti Hólarannsóknina myndarlega og lagði til hennar 11 milljónir króna, sem var hæsti styrkur sjóðsins til fornleifarannsókna á þessu ári. Að öðru leyti standa Hólaskóli, Byggðasafn Skagfirðinga og Þjóðminjasafn Íslands að verkefninu, en jafnframt er samstarf við stofnanir og háskóla erlendis. Gert er ráð fyrir að rannsókninni ljúki árið 2007.

Eldstæði frá 11. - 12. Öld.

WWW.HOLAR.IS/FORNLEIFAR

ÞVERFAGLEGAR RANNSÓKNIR Hólarannsóknin er meira en eingöngu fornleifarannsókn í hefðbundnum skil-ningi þess orðs. Hún byggist á þverfag-legum grunni og er starfsvettvangur sérfræðinga á flestum sviðum menningarsögulegra rannsókna; rúmlega 40 manns störfuðu að rannsókninni í sumar. Minna má það ekki vera þegar við rekjum okkur eftir slóð kynslóðan na á svo sögufrægum stað allt aftur til landnáms, fram hjá Guðbrandi Þorláks-syni, fram hjá Jóni Arasyni og fram hjá Jóni Ögmundarsyni, svo að fáeinir merkismenn séu taldir sem við eigum eftir að kynnast með áþreifanlegri hætti en hægt er af rituðum heimildum. Sægur af ritheimildum er til um Hóla í Hjaltadal, frásagnir, úttektir, túnakort, upplýsingar um húsakost og þannig mætti lengi telja. Þær munu að sjálfsögðu gagnast rannsókninni vel – og eru rannsóknarefni í sjálfu sér. En pappírinn geymir verk hugans, jörðin verk handarinnar. Nú er það okkar hlutverk, sem störfum að Hólarannsókninni, að fletta ofan af hverju laginu á eftir öðru í jarðveginum, eins og væri hann bók, og lesa úr honum fróðleik um gengnar aldir, hvernig menn bjuggu, hvert var þeirra viðurværi, hver voru þeirra kjör og hvaða þýðingu Hólastaður hafði fyrir umhverfi sitt og landið allt. Samtímis Hólarannsókninni fer fram viðamikill uppgröftur á Skálholtsstað, einnig með tilstyrk Kristnihátíðarsjóðs, og verður áhugavert að bera saman niðurstöðurnar úr þessum tveimur rannsóknum. Skálholt og Hólar voru valdamestu miðstöðvar landsins um aldir og stærstu þéttbýliskjarnar.

W W W . H O L A R . I S / ~ F O R N L E I F A R

PLÖNTUR OG SKORDÝR Mikið fannst af leirkerabrotum og innfluttum krítarpípum, sem unnt verður að upprunagreina vegna stimpla og skrauts; þannig má geta sér til um milliríkjaviðskipti. Þá fannst fjöldi gripa úr málmi, bronsi eða járni, t.d. lyklar, vasahnífar, krókar, naglar o.fl. Einnig falleg kola, perlur og pottabrot úr klébergi, fjöldinn allur af brýnum og mót úr rauðum sandsteini til að steypa lýsislampa. Gripir úr beini voru nokkrir, merkilegastir sennilega kotra og útskorinn hnappur og hugsanlega ljóstur úr hvalbeini til fiskveiða. Þegar því varð við komið var gripum úr uppgreftrinum stillt út í sýningarskáp á Hólum fyrir gesti og gangandi, en fjöldi ferðamanna heimsótti uppgröftinn í sumar og naut leiðsagnar um svæðið.

Greining dýrabeina og þá sérstaklega úr öskuhaugunum eru mikilvægur þáttur í rannsókninni. Beinin gefa upplýsingar um fæðu fólks, um hvers konar skepnur menn héldu, hvaða dýrategundir voru veiddar og hlutfallið þar á milli. Greining dýrabeina getur því gefið mikilvægar upplýsingar lífsviðurværi og efnahag á mismunandi tímum. Í frumskýrslu beinafræðings kemur fram að beinin eru flest úr kindum en einnig nautgripum, hestum, hundum og svínum. Fáein sels-bein eru í safninu og mikið af fisk- og fuglabeinum, einkum úr ýsu og svartfug-li en einnig hrafni og önd, allt eins og búast mátti við. Jafnhliða fer fram grei-ning á jarðvegssýnum og plöntu- Jafnhliða fer fram greining á jarðvegssýnum og plöntu- og skordýrasýnum. Greining þeirra getur sagt til um hvaða gróður óx á svæðinu og gefið vísbendingar um loftslag og veðurfar á mismunandi tímum. Einnig má fá hugmyndir um notkun jurta til skepnufóðurs og heimilishalds. Leifar jurta, sem eru framandi í íslensku umhverfi, geta gefið tilefni til ályktana um erlend samskipti og styrkt vísbendingar um viðskiptatengsl. Leifar skordýra verða einnig greindar úr jarðvegssýnum. Upplýsingar um tegundir skordýra, sem þrifist hafa á ákveðnu svæði eða í tilteknu húsi geta sagt til um aðstæður þar, raka, hita, hlutverk hússins o.fl. Til eru skordýr, sem hvergi vilja vera nema með mönnum og aðrar sem aðeins dafna hjá tilteknum skepnum. Úrvinnslu er fjarri því lokið – og enn á eftir að grafa í fjögur ár.

WWW.HOLAR.IS/FORNLEIFAR

Reynslan sýnir að það getur verið mjög erfitt að rekja byggingasögu og skilgreina notkun húsa þegar grafið er á stöðum, þar sem búseta hefur haldist í margar aldir og reist hafa verið mannvirki hlið við hlið og hvert ofan í annað. Í slíkum tilfellum er nauðsynlegt að nýta allar upplýsingar sem uppgröftur getur gefið og styðjast við heimildir, sem eru góðu heilli margar og margvíslegar um Hóla eins og áður segir.

Alls fundust á fjórða þúsund gripa við Hólarannsóknina 2002 og 80 kg af beinum. Forvarsla og greining á þessum gripum og beinum ásamt úrvinnslu á fjölda sýna fer fram í ekki færri en þremur löndum í vetur. Munarannsóknir eru eðlilega mikilvægur hluti fornleifarannsókna á Hólum, en gripirnir gefa ekki aðeins vísbendingar um aldur, heldur einnig um efnisnotkun, verkkunnáttu, verslun, efnahag, tengsl innanlands og við útlönd o.s.frv.

Á FJÓRÐA ÞÚSUND GRIPA

Kirkjugarðurinn í Keldudal

W W W . H O L A R . I S / ~ F O R N L E I F A R

ÓPLÆGÐUR AKUR Þótt furðulegt megi virðast eru Hólar í Hjaltadal að miklu leyti óplægður akur í fornleifa- og sagnfræðilegu tilliti. Takmarkaðar rannsóknir hafa farið fram áður. Og hvarvetna í nágrenni Hóla voru gerðar athyglisverðar fornleifafræðilegar uppgötvanir sumarið 2002, á landnámsbænum Hofi í Hjaltadal, við ósa Kolku, sem var höfn Hólastaðar, í Glaumbæ og síðast en ekki síst í Keldudal í Hegranesi, þar sem öllum að óvörum fannst kirkjugarður úr frumkristni á Íslandi. Allt skiptir þetta máli fyrir Hólarannsóknina. Markmið hennar er m.a. að fá heildarmynd af þróun staðarins og umhverfis hans og enn fremur að afla nýrra gagna um sögu Íslands og samskipti Íslendinga til forna við umheiminn. Fornleifarannsókninni er ætlað að auka við þekkingu manna á völdum og áhrifum kirkjulegra miðstöðva í öndverðu, efnahag biskupa á mismunandi tímum, rekstur og skipulag Hólastaðar, þess þorps sem þar reis, og lífsstíl íslenskrar yfirstéttar – ef svo má að orði kveða. Sem dæmi má nefna að hvergi - nema e.t.v. í Skálholti - gefst jafngott tækifæri til að grafa upp jafnmargar mismunandi húsategundir á einum stað.

Höfn Hólastaðar Kolkuós

Þetta fyrsta sumar uppgraftarins var sverðinum lyft af á sex stöðum. Ákvarðanir um graftarsvæði voru teknar með hliðsjón af jarðsjármælingum,gömlum túnakortum og úttektum á jörðunum. Öskuhaugur hefur þegar verið nefndur, en annar öskuhaugur var grafinn fyrir framan kirkjuna. Í honum fundust einnig mannvistarlög frá miðöldum og ýmsir merkilegir gripir, brot úr norskri klébergsgrýtu, bökunarhella og perla úr klébergi. Lítill könnunarskurður var grafinn undir kirkjuveggnum sunnanmegin í þeirri von að fyndust göng úr kirkjunni yfir í híbýlin. Þessi tilraun virðist hafa gefið góða raun. Altént fundust hleðslur sem benda eindregið til að vera leifar ganga og geta vísað á mannabústaðina sem þau hafa tengst. Í sumar verður reynt að rekja þau að öðrum mannvirkum. Tveir könnunarskurðir við kirkjugarðinn austanmegin skiluðu aftur á móti litlum ávinningi.

Hóladómkirkja

160

150

145

"!28

"!13

"!14

"!12 "!5

"!19

"!18

"!15

"!23

"!25

"!26

N

Núverandi byggingar

Núverandi skurðir

Núverandi vegur

Hæðarlína

Uppgröftur sumarið 2002

Könnunarskurðir sumarið 2001

5 Bæjarrústir frá um 188012 Fjós frá 190213 Fjósrústir frá 188914 Prenthús frá 18 öld15 Latínuskóli frá 18 öld18 Skothús Jóns Arasonar23 Virkislág25 Auðunarstofa26 Skóli Jóns Ögmundssonar28 Gvendarbrunnur

Kirkjugarður

Rústir

Öskuhaugur

Byggingar

Lækir

Núverandi afstaða

Skýringar á korti frá 1912

KORT SEM LIGGUR UNDIR: Kort teiknað 1912 afnemendum eldri deildar HólaskólaKORTAGERÐ: Hjalti Þórðarson Hólaskóla, 09.02

M3020100

Afstaða mannvirkja á korti frá 1912 og núverandi afstaða

HÓLAR Í HJALTADALHÓLAR Í HJALTADAL

WWW.HOLAR.IS/FORNLEIFAR

SUMARIÐ 2002

W W W . H O L A R . I S / ~ F O R N L E I F A R

PRENTSMIÐJUHÚSIN Á 18.ÖLD Stærsta uppgraftarsvæðið er 18x14 m að stærð og í því miðju stendur styttan af Jósepi J. Björnssyni, fyrsta skólastjóra Bændaskólans á Hólum. Viðnámsmælingar í jörð höfðu sýnt mjög greinilegar útlínur húss og samkvæmt túnakortum höfðu prentsmiðjuhús staðið þar á 18. öld. Óttast var að minjar hefðu orðið fyrir miklu raski þegar bæjarstæðið var sléttað og tré gróðursett, en fljótlega kom í ljós að minjar frá 18. öld voru óskaddaður að mestu. Mikill fjöldi gripa fannst í efsta laginu rétt undir grasrótinni og í rótuðum lögum frá 20. öld. Gripirnir eru samt sem áður miklu eldri, sumir frá 16. öld. Þar fundust greinilegar leifar mannvirkja frá 18. öld, fjós og hlaðnir ofnar, sem kalla á nákvæman samanburð við úttektir frá 17. og 18. öld á húsakosti á jörðinni. Vitað er að kirkjusmiðurinn á Hólum hlóð kakelofn í prentsmiðjuhúsinu um miðja 18. öld.